Einfaldar leiðbeiningar
Fyrst skráir þú inn upplýsingar um flytjanda. Vinsamlegast hafðu þessar upplýsingar eins réttar og hægt er og sparaðu grínið nema að það sé fyndið. Þegar því er lokið er hægt að skrá sig inn á notandanafni og lykilorði sem viðkomandi tengiliður valdi í skráningarferlinu. Innskráning fer fram í töflunni "Tengiliðir" hægra megin á forsíðu rokk.is eftir að forsíðan hefur verið endurhlaðin. Tengiliðir geta breytt upplýsingum um sig og flytjandann, skráð lög og sett inn nýja mynd. Hægt er að skrá upplýsingar um það lag/lög sem viðkomandi flytjandi ætlar að senda á rokk.is ásamt því að senda lagið sjálft. Athugið að aðeins er tekið við .mp3 skrám. Ekki er tekið við .wma eða öðrum óstöðluðum sniðum. Ekki er heldur tekið við einhverju helvítis rugli, t.d. stolnum og breyttum lögum eða coverlögum. Hægt er að skrá 1 - 15 lög, sem flytjandi á fullan höfundar- og útgáfurétt á, á mp3 sniði. Ef einhver vandræði koma upp í þessu ferli hikaðu þá ekki við að senda póst á rokk@rokk.is.



